Reynir S efstir í 1. deild.

Reynismenn sigruðu Fjölnismenn nú í kvöld sannfærandi heyri ég 3-0. Frábær byrjun það, mikilvægt er þó fyrir stuðningsmenn að halda áfram að hvetja okkar menn til dáða því baráttan verður án nokkurs vafa erfið, en einn leikur, þrjú stig og efsta sætið er góð byrjun. Ég óska Reynismönnum til hamingju. Það er líka gott að það voru þrír leikmenn sem opnuðu markareikningana sína í fyrsta leik, það gefur þeim vonandi byr í seglin.

Reyndar stóðu suðurnesjaliðin sig vel í dag og um helgina, ég var þó að vonast eftir sigri KR á móti Keflavík, en það er annað mál. 

Baráttu- og fagnaðarkveðjur.

Ari Gylfa.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband